Velkomin til þátttöku í eftirfylgdarrannsókn Líðan þjóðar á tímum COVID-19
Þessi eftirfylgdarrannsókn nær aðeins til þeirra sem hafa skráð sig áður í rannsóknina.
Alls hafa um 24.000 manns tekið þátt og svarað fyrsta spurningalista rannsóknarinnar. Í kjölfar faraldursins er mikilvægt að skilja langtímaáhrif hans á heilsufar Íslendinga, þ.e. hvernig þyngd faraldursins, ýmsar sóttvarnarráðstafanir, sýkingar af völdum nýrra afbrigða veirunnar, bólusetningar, efnahagsþrengingar og nýjar áskoranir á heimsvísu spila þar inn. Því teljum við mikilvægt að halda rannsókninni áfram og bjóðum nú öllum þátttakendum að svara nýjum spurningalista.
Allar upplýsingar um eftirfylgdarrannsóknina má finna hér.
