Líðan þjóðar á tímum COVID-19
Eftirfylgdarrannsókn
Líðan þjóðar á tímum COVID-19 miðar að því að auka þekkingu á áhrifum faraldursins og líðan og lífsgæði landsmanna. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu rannsóknarverkefni á þessu sviði og er opin öllum einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa rafræn skilríki.
Ný þekking á langtímaeinkennum
Niðurstöður rannsóknarinnar benda meðal annars til þess að ákveðin hluti þeirra sem fá COVID-19 sjúkdóminn hafi þrálát einkenni sem geta haft víðtæk áhrif á líf þeirra. Því er afar mikilvægt að halda áfram rannsóknum á algengi slíkra einkenna og annarra afleiðinga faraldursins á okkar samfélag.
Væntingar standa til þess að rannsóknin muni gefa mikilvægar upplýsingar um algengi og áhrif langvinnra einkenna vegna COVID-19 en slík þekking er mikilvæg yfirvöldum við skipulag heilbrigðisþjónustu til framtíðar.
Þátttaka í eftirfylgdarrannsókninni felur í sér:
Svörun rafræns spurningalista – tekur um það bil 15 mínútur að svara.
Spurt er um bakgrunn, heilsufarssögu og ýmiss sálræn og líkamleg einkenni frá upphafi faraldursins. Einnig eru í listanum spurningar um einkenni, heilsufar þitt og líðan á síðustu vikum.
Samtenging við aðrar heilbrigðisupplýsingar og lífssýnasöfn.
Til að skilja til hlítar hvort faraldurinn og viðbrögð við honum hafi víðtækari áhrif á heilsufar þitt til lengri tíma óskum við einnig eftir samþykki þínu til að tengja upplýsingar spurningalistans við gagnagrunna og lífsýnasöfn hérlendis sem gefa upplýsingar um heilsufar (t.d. á vegum Embættis landlæknis, sjúkrahúsanna, Íslenskrar erfðagreiningar, Áfallasögu kvenna, Heilsu og líðan Íslendinga).
Hvernig skári ég mig í rannsóknina?
Þú skráir þig til þátttöku hér á vefsíðunni með Íslykli eða rafrænum skilríkjum og staðfestir þar á eftir þátttöku þína á rafrænan hátt. Í kjölfarið verður þú beðin(n) um að gefa upp netfang og farsímanúmer en þannig sendum við þér krækju á rafræna spurningalistann. Þú getur síðan valið um að svara spurningunum í tölvu eða síma.
Þátttaka þín í rannsókninni er algjörlega valfrjáls; þú getur valið að sleppa ákveðnum hluta rannsóknarinnar eða að hætta þátttöku alfarið hvenær sem er í ferlinu án frekari skýringa.
Rannsóknin hefst með svörun rafræns spurningalista. Til þess að geta tekið þátt þarft þú að hafa Íslykil eða rafræn skilríki og vera eldri en 18 ára.
Þátttakendur mega eiga von á boði í eftirfylgdarrannsóknir og/eða mögulegar undirrannsóknir. Þú getur tekið afstöðu til þeirrar þátttöku síðar.
Tenging verður gerð við aðrar heilbrigðisupplýsingar og lífssýnasöfn í samræmi við heimild Vísindasiðanefndar, Persónunefndar og samþykki þátttakenda.
Niðurstöður rannsóknarinnar verða gefnar út í ritrýndum greinum í virtustu vísindatímaritum heims og munu upplýsingar úr þeim birtast hér á síðunni, á samfélagsmiðlum rannsóknarinnar og í fjölmiðlum.
Væntingar standa til þess að niðurstöður rannsóknarinnar verði síðar hægt að nota til forvarna og meðferðar við alvarlegum heilsufarsáhrifum áfalla.
Upplýsingarnar sem þú veitir gegnum spurningalistann eru varðveittar á dulkóðuðu formi í gagnaverum hugbúnaðarfyrirtækisins MEDEI ApS og við Reiknistofnun Háskóla Íslands. Gagnaverin eru aðgangsstýrð þannig að enginn óviðkomandi kemst í þessar upplýsingar heldur einungis ábyrgðarmaður og gagnagrunnsstjórar rannsóknarinnar. Upplýsingarnar um þig verða einungis notaðar í ofangreinda vísindarannsókn en ekki í neinum öðrum tilgangi, nema í mögulegum undirrannsóknum sem verða þá gerðar með leyfi Vísindasiðanefndar og Persónuverndar. Vísindamenn sem vinna með gögnin fá upplýsingar á dulkóðuðu formi og geta því ekki rakið upplýsingarnar til þín. Þessir ferlar og rannsóknin í heild sinni hefur verið samþykkt af Vísindasiðanefnd og Persónuvernd.
Hverjir standa að rannsókninni?
Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknin er unnin í samstarfi ýmissa vísindamanna innan Háskóla Íslands og Embættis landlæknis.
Hvar get ég fengið frekari upplýsingar?
Ef þú hefur spurningar um rannsóknina eða vilt fá frekari upplýsingar um þátttöku þína, þá getur þú sent póst á netfangið: lidanicovid@hi.is
Rannsakendur:
Verkefnið hefur hlotið styrk frá Ríkisstjórn Íslands og er styrkt af SMART-TRIAL