Til að geta tekið þátt þarft þú að hafa Íslykil eða rafræn skilríki.
Einnig þarftu að hafa aðgang að tölvu eða snjallsíma til að geta svarað spurningalista rannsóknarinnar.
Áður en þú skráir þig í rannsóknina þá mælum við með því að þú skoðir upplýsingar um rannsóknina sem finna má hér. Upplýsingar um eftirfylgnirannsóknina má finna hér.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt þá getur þú skráð þig hér, þar sem þú gefur upp Íslykil eða rafræn skilríki.
Þegar þú ert búin að skrá þig inn kemur texti sem við óskum eftir að þú lesir vandlega og neðst ertu beðin um að haka við upplýst samþykki. Þar biðjum við líka um netfangið þitt og farsímanúmer. Að því loknu getur þú svarað spurningalista rannsóknarinnar.
Hægt er að taka sér hvíld frá því að svara spurningunum með því að loka könnuninni. Til að halda áfram þar sem frá var horfið þá einfaldlega smellir þú á krækjuna sem þú fékkst senda með tölvupósti og símaskilaboðum (ef þú óskaðir eftir því).
Athugaðu að það er mikilvægt að fá svör við öllum spurningunum. Ef þú vilt ekki eða getur ekki svarað einstaka spurningum þá er hægt að haka við “Get / Vil ekki svara”.