Líðan þjóðar á tímum COVID-19
COVID-19 faraldurinn er ein stærsta áskorun sem þjóðir heims hafa staðið frammi fyrir og hefur gríðarleg áhrif á almannaheill og efnahag. Íslendingar hafa ekki farið varhluta af þessum samfélagshremmingum og því er mikilvægt að kanna áhrif faraldursins á íslensku þjóðina.
Líðan þjóðar á tímum COVID-19 er vísindarannsókn á vegum Háskóla Íslands, Embættis landlæknis og sóttvarnalæknis sem miðar að því að auka þekkingu á áhrifum faraldursins á líðan og lífsstíl landsmanna. Rannsóknin er hluti af alþjóðlegu rannsóknarverkefni á þessu sviði og er opin öllum einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa rafræn skilríki eða íslykil.
Hingað til hefur verið leitast við að svara eftirfarandi spurningum:
Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar hafa vakið athygli á heimsvísu. Þær varpa meðal annars ljósi á:
Verkefnið miðar einnig að því að miðla almennum upplýsingum til þátttakenda og allra landsmanna um niðurstöður rannsóknarinnar.
Þó faraldurinn sé nú í rénun má búast við margvíslegum langvarandi áhrifum hans á íslenskt samfélag og lýðheilsu. Því er mikilvægt að halda áfram að rannsaka mögulegar breytingar á líðan, lífstíl, högum og heilsufari þeirra sem þegar hafa tekið þátt í rannsókninni.
Væntingar standa til þess að rannsóknin muni gefa skýr svör við ofangreindum spurningum en slík þekking er mikilvæg yfirvöldum við skipulag heilbrigðisþjónustu og almannavarna á tímum samfélagslegra áfalla á borð við heimsfaraldurinn COVID-19.
Þátttaka í rannsókninni felur í sér:
Svörun rafræns spurningalista sem tekur um 15-20 mínútur að svara. Auk bakgrunnsupplýsinga og spurninga um heilsufarssögu og mögulega áhættuþætti, snúa flestar spurningarnar að áhrifum COVID-19 faraldursins á líf þitt og nákominna aðila ásamt spurningum um heilsufar og líðan á síðustu vikum.
Samtenging við aðrar heilbrigðisupplýsingar og lífsýnasöfn.
Til að skilja til hlítar hvort faraldurinn og viðbrögð við honum hafi víðtækari áhrif á heilsufar þitt til lengri tíma óskum við einnig eftir víðtæku samþykki þínu til að tengja upplýsingar spurningalistans við heilbrigðisgagnagrunna, rannsóknir og lífsýnasöfn á heilbrigðissviði, en eingöngu að að fengnu viðbótarleyfi Vísindasiðanefndar.
Hvernig skrái ég mig í rannsóknina?
Þú skráir þig til þátttöku hér á vefsíðunni með Íslykli eða rafrænum skilríkjum og staðfestir þar á eftir þátttöku þína á rafrænan hátt. Í kjölfarið gefur þú upp netfang og farsímanúmer en þannig sendum við þér krækju á rafrænan spurningalista. Þú getur síðan valið um að svara spurningunum í tölvu eða síma.
Þátttaka þín í rannsókninni er algjörlega valfrjáls; þú getur valið að sleppa ákveðnum hluta rannsóknarinnar eða að hætta þátttöku alfarið hvenær sem er í ferlinu án frekari skýringa.
Rannsóknin hefst með svörun rafræns spurningalista. Til þess að geta tekið þátt þarft þú að hafa Íslykil eða rafræn skilríki og vera eldri en 18 ára.
Þátttakendur mega eiga von á boði í eftirfylgdarrannsóknir og/eða mögulegar undirrannsóknir. Þú getur tekið afstöðu til þeirrar þátttöku síðar.
Tenging verður gerð við aðrar heilbrigðisupplýsingar og lífssýnasöfn í samræmi við heimild Vísindasiðanefndar, Persónunefndar og samþykki þátttakenda.
Niðurstöður rannsóknarinnar verða gefnar út í ritrýndum greinum í virtustu vísindatímaritum heims og munu upplýsingar úr þeim birtast hér á síðunni, á samfélagsmiðlum rannsóknarinnar og í fjölmiðlum.
Væntingar standa til þess að niðurstöður rannsóknarinnar verði síðar hægt að nota til forvarna og meðferðar við alvarlegum heilsufarsáhrifum áfalla.
Upplýsingarnar sem þú veitir gegnum spurningalistann eru varðveittar á dulkóðuðu formi í gagnaverum hugbúnaðarfyrirtækisins MEDEI ApS og við Reiknistofnun Háskóla Íslands. Gagnaverin eru aðgangsstýrð þannig að enginn óviðkomandi kemst í þessar upplýsingar heldur einungis ábyrgðarmaður og gagnagrunnsstjórar rannsóknarinnar. Upplýsingarnar um þig verða einungis notaðar í ofangreinda vísindarannsókn en ekki í neinum öðrum tilgangi, nema í mögulegum undirrannsóknum sem verða þá gerðar með leyfi Vísindasiðanefndar og Persónuverndar. Vísindamenn sem vinna með gögnin fá upplýsingar á dulkóðuðu formi og geta því ekki rakið upplýsingarnar til þín. Þessir ferlar og rannsóknin í heild sinni hefur verið samþykkt af Vísindasiðanefnd og Persónuvernd.
Hverjir standa að rannsókninni?
Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands. Rannsóknin er unnin í samstarfi ýmissa vísindamanna innan Háskóla Íslands og Embættis landlæknis.
Hvar get ég fengið frekari upplýsingar?
Ef þú hefur spurningar um rannsóknina eða vilt fá frekari upplýsingar um þátttöku þína, þá getur þú sent póst á netfangið: lidanicovid@hi.is
Rannsakendur:
Verkefnið hefur hlotið styrk frá Ríkisstjórn Íslands og er styrkt af SMART-TRIAL