líðan í covid-19 – hádegisfréttir rúv

líðan í covid-19

líðan í covid-19 – hádegisfréttir rúv

Viðtalið er unnið upp úr Hádegisfréttum RÚV frá 24. apríl 2020

Arna Hauksdóttir, prófessor í Lýðheilsuvísindum við Læknadeild Háskóla Íslands og einn forsvarsmanna rannsóknarinnar Líðan þjóðar á tímum COVID-19 segir í hádegisfréttum á RÚV föstudaginn 24. apríl 2020 frá rannsókninni sem vísindamenn Háskóla Íslands hleyptu af stokkunum þann dag í samstarfi við Embætti landlæknis og sóttvarnalæknis.

Arna Hauksdóttir segir að spurt sé út í COVID-tengda þætti; hvort fólk hafi greinst af sjúkdómnum eða verið í sóttkví, en einnig um andlega og líkamlega líðan og félagslegt umhverfi.

„Við viljum fá svör við þessum spurningum. Hvernig fólki líður á þessum skrítnu tímum og við viljum geta skoðað það út frá upplifun fólks  á COVID. Hvort það hafi veikst eða farið í sóttkví.“

Arna segir mikilvægt að sem flestir taki þátt.

„Já, við viljum fá sem flesta til að taka þátt af því að þannig verður rannsóknin bæði stærri og áreiðanlegri og við getum svarað fleiri spurningum. Og getum líka skoðað heilsu fólks til lengri tíma og það er ekki síður mikilvægt í þessu samhengi að við getum fylgt eftir fólki á næstu misserum. Þannig að það er líka mikilvægt því við vitum ekki hvernig málin munu þróast. Þannig að það verður mjög mikilvægt hlutverk þessarar rannsóknar.“

Vertu með í að hafa áhrif á framtíðina með vísindalegri þekkingu og taktu þátt í Líðan í COVID-19 hér