24 nóv Íslensk rannsókn tengd covid-19 fær styrk
Fréttin birtist á mbl.is þann 21.10.2020
Líðan í Covid hefur hlotið styrk frá Norrænu rannsóknarstofnunin, NordForsk, sem hefur styrkt fimm norrænar rannsóknir sem tengjast kórónuveirufaraldrinum. Líðan í Covid var eitt þeirra og er leitt af Unni Valdimarsdóttur, prófessor í faraldsfræði við Háskóla Íslands.
Rannsókn Unnar og samstarfsfólks nefnist Þróun geðheilsu í áhættuhópum fimm landa í heimsfaraldri COVID-19. Í henni er ætlunin að bregðast við ákalli Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og vísindasamfélagsins um auknar rannsóknir á áhrifum kórónuveirufaraldursins á geðheilsu fólks.
Faraldurinn hefur nú þegar haft áhrif á líkamlega heilsu milljóna manna um allan heim og um leið sett efnahag þjóða úr skorðum en mikilvægt er talið að kanna hvaða langtímaáhrif hann kann að hafa á andlega heilsu.
Rannsóknarhópur undir forystu Unnar hlýtur 150 milljóna króna styrk.
Í fréttatilkynningu kemur fram að verkefnunum sé enn fremur ætlað að auka þekkingu til að ráða niðurlögum kórónuveirufaraldursins.
Rannsakendur frá Norðurlöndunum og Eistlandi taka þátt en alls hefur NordForsk lagt til 53 milljónir norskra króna til verkefnisins, jafnvirði um 797 milljóna íslenskra króna.
Stöndum saman og tökum öll þátt á: www.lidanicovid.is
Vísindi eru almannavarnir!