14 apr Líðan þjóðarinnar á tímum COVID-19 verður rannsökuð
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag að veita 1,5 milljónir króna af sameiginlegu ráðstöfunarfé sínu til rannsóknar á líðan þjóðarinnar á tímum COVID-19. Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands stendur að rannsókninni í samvinnu við Medei ApS í Danmörku og Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Embætti landlæknis hefur ákveðið að taka þátt í framkvæmd rannsóknarinnar.
Markmið rannsóknarinnar er að meta líðan og lífsgæði þjóðarinnar við núverandi aðstæður og möguleg áhrif á heilsufar til lengri tíma. Rannsóknin er tvíþætt. Annars vegar verður öllum einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa rafræn skilríki boðið að taka þátt í netkönnun um líðan á óvissutímum faraldursins COVID-19. Þessi hluti könnunarinnar fer fram innan skamms og verður endurtekinn að ári. Hins vegar verður leitað til þátttakenda í tveimur rannsóknum sem áður hafa verið gerðar á líðan landsmanna, þ.e. annars vegar í rannsókn embættis landlæknis; Heilsa og líðan Íslendinga sem gerð var árið 2017 og hins vegar í rannsókn Unnar Valdimarsdóttur; Áfallasaga kvenna. Með því að leita til þessara tveggja hópa og kanna aðstæður þeirra núna fæst samanburður á mati þeirra á eigin heilsu og líðan fyrir og eftir COVID-19.
Horft er til þess að niðurstöður rannsóknarinnar muni veita mikilvægar upplýsingar sem nýtast við stefnumótun, forgangsröðun verkefna, til að meta heilsufarslegan jöfnuð/ójöfnuð og svo mætti áfram telja.
Upphaflega frétt má sjá á vef Stjórnarráðsins þar sem hún birtist 14. apríl 2020.
Einnig birtist frétt á vef Ríkisútvarpsins ruv.is þann 14. apríl 2020.